Skilmálar

Almennar upplýsingar
Seljandi er Streymi heildverslun ehf., kt. 600904-2480, VSK númer 84285, hér eftir nefndur Streymi. Kaupendur eru þeir sem skráðir eru fyrir kaupum skv. reikningi. Skilmálarnir geta tekið minniháttar breytingum án fyrirvara.

Vöruafhending
Við sendum vörur hvert á land sem er með Íslandspósti, Samskip og Eimskip alla virka daga.

Skilaréttur
Streymi býður upp á 14 daga skilarétt að minniháttar skilyrðum uppfylltum. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi. Allar umbúðir og allir fylgihlutir þurfa að vera til staðar. Framvísa þarf nótu við skilum. Starfsfólk Streymis getur hafnað skilum alfarið ef uppfylltum skilirðum er ekki fylgt. Starfsfólk Streymis áskilur sér rétt til þess að taka allt að 15% skilagjald ef þörf þykir. Skilaréttur gildir ekki um sérpantanir.

Upplýsingar
Streymi veitir upplýsingar um vörur og þjónustu með fyrirvara um innsláttarvillur, verð, myndir, lagerstöðu og bilanir. Ef vara er uppseld þá áskilur Streymi sér rétt til að aflýsa sölu í heild eða að hluta til og endurgreiða upphæðina. Farið er með persónuupplýsingar sem algjört trúnaðarmál og þær einungis nýttar til að ljúka viðkomandi viðskiptum og tryggja góða þjónustu. Viðkvæmar greiðsluupplýsingar fara ávallt í gegnum örugga vefsíðu Rapyd Europe hf. (áður Korta hf.) þar sem notast er við SSL tengingar, slíkar upplýsingar koma aldrei við sögu hjá okkur né vefsíðunni okkar. 

Greiðsla
Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga, dulkóðaða kortasíðu Rapyd Europe hf. (áður Korta hf.) með alþjóðlegum stöðlum um öryggi kortaupplýsinga. Einnig bjóðum við upp á millifærslu, póstkröfu (skv. gjaldskrá Íslandspósts) og fleira.

Verð
Verð gildir aðeins ef pantað er á netinu. Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir geta sótt um sérstök afsláttarkjör ef viðskipti eru mikil og tíð. Verð eru birt með virðisauka. Verð geta breyst án fyrirvara.

Sérpantanir
Ekki er hægt að skila sérpöntunarvörum. Ekki er hægt að hætta við sérpantanir eftir að pöntun hefur verið lögð inn. Starfsmenn Streymis geta farið fram á að sérpantanir séu að hluta eða að fullu fyrirframgreiddar. Fyrirframgreiðsla fæst aðeins endurgreidd ef innkaupastjóri Streymis hefur tök á því að hætta við innkaupapöntunina milli Streymis og birgja/framleiðanda.

Eignaréttur
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt, þetta gildir einnig um reikningsviðskipti.

Nánari upplýsingar
Ef spurningar vakna eða eitthvað er óljóst í skilmálum þessum þá má hafa samband með tölvupósti á streymi@streymi.is eða símleiðis í 588-2544.

Með von um framtíðarviðskipti,
Starfsfólk Streymi heildverslunar ehf.