UM OKKUR

Streymi heildverslun ehf. er leiðandi fyrirtæki í innflutningi og sölu á efnum og búnaði til meindýravarna, jafnt fyrir fagfólk á því sviði og til verslana til endursölu.

Við bjóðum upp á fjölbreytilegt úrval af slíkum vörum og veitum viðskiptavinum okkar um allt land faglega, sveigjanlega og skjóta þjónustu.

Fyrirtækið var stofnað á Akureyri 2004 og hefur því langa reynslu af innflutningi á efnum og búnaði til meindýravarna hvers konar, þjónustu við meindýraeyða, sölu til verslana og þjónustu við þau tæki sem fyrirtækið flytur inn. Stofnandi og eigandi fyrirtækisins starfaði áður við meindýravarnir og þekkir því vel til á þessu sviði, sem er mikill kostur þegar kemur að ráðgjöf til viðskiptavina við val á réttu efnunum og hentugum búnaði miðað við aðstæður hverju sinni, og notkun þeirra.