Fly-Shield Eitt Professional er afar nýstárlegt tæki frá Insect-a-clear og verndar allt að 90 fermetra svæði fyrir fljúgandi skordýrum. Þetta er fremur nett tæki sem ætlað er á vegg, notar eina 18 vatta sparperu og hentar einkar vel á veitingastöðum, kaffihúsum, skyndibitastöðum og í smærri eldhúsum.
VIÐHALD ÁN VERKFÆRA: Með því að lyfta upp framhlífinni getur þú losað hana af og komist auðveldlega að perunni og límspjaldinu.
MEIGINBURÐARVIRKI ÚR STÁLI: Ekkert plast er í meiginburðarvirki þar sem útfjólublátt ljós veldur því að plastefni verður stökkt og brothætt. Með því að nota ekkert plast í meiginburðarvirki Fly-Shield hefur tekist að draga mjög úr brothættu og uppsöfnun óhreininda sem gjarnan fylgja tækjum úr plasti.
PERA MEÐ ÖRYGGISHlLÍF: Allir nýjir Fly-Shield flugnabanarnir frá okkur koma með perum með öryggishlíf. Öryggishlífin er plasthlíf sem umliggur peruna og verndar umhverfið fyrir glerbrotum. Ef peran brotnar haldast glerbrotin inn í öryggishlífinni, en það er afar mikilvægt t.d. þar sem unnið er með opin matvæli.