Fly-Shield Tvö Professional er afar nýstárlegt tæki frá Insect-a-clear og verndar allt að 180 fermetra svæði fyrir fljúgandi skordýrum. Þetta tæki er mun stærra en Fly-Shield Eitt Professional. Það er búið tveimur 18 vatta sparperum og verndar því stærra svæði. Svona tæki væri t.d. hentugt á veitingahúsum, stórmörkuðum, gestamóttökum og þjónustusvæðum. Tækið á líka vel heima í eldhúsum.
VIÐHALD ÁN VERKFÆRA: Með því að lyfta upp framhlífinni getur þú losað hana af og komist auðveldlega að perunni og límspjaldinu.
MEIGINBURÐARVIRKI ÚR STÁLI: Ekkert plast er í meiginburðarvirki þar sem útfjólublátt ljós veldur því að plastefni verður stökkt og brothætt. Með því að nota ekkert plast í meiginburðarvirki Fly-Shield hefur tekist að draga mjög úr brothættu og uppsöfnun óhreininda sem gjarnan fylgja tækjum úr plasti.
PERA MEÐ ÖRYGGISHlLÍF: Allir nýjir Fly-Shield flugnabanarnir frá okkur koma með perum með öryggishlíf. Öryggishlífin er plasthlíf sem umliggur peruna og verndar umhverfið fyrir glerbrotum. Ef peran brotnar haldast glerbrotin inn í öryggishlífinni, en það er afar mikilvægt t.d. þar sem unnið er með opin matvæli.