Inniheldur: Asameþífos (CAS-nr. 35575-96-3): 0,4% m/m, Sýpermetrín (CAS-nr. 52315-07-8): 0,4% m/m, Píperónýlbútoxíð (CAS-nr. 51-03-6): 0,4% m/m.
UFI: QJD8-WSQJ-4R33-6X48
Geymið fjarri hita og raka.
Gætið varúðar við notkun sæfiefna. Lesið merkimiðann og vöruupplýsingarnar fyrir notkun. Öryggisblað er tiltækt ef um er beðið.
NOTENDALEYFISSKYLD VARA
EIGINLEIKAR
Stryker er breiðvirkt skordýraeitur sem er ætlað að vinna bug á veggjalús og kakkalökkum. Úðabrúsinn er með nákvæmum skömmtunarstúti til notkunar í sprungum, skorum og glufum. Þetta tryggir stýrða og langvinna losun virku efnanna tveggja sem til staðar eru í blöndunni, þ.e. asameþífos og sýpermetríns. Efnið í slikjunni sem verður eftir getur haft áframhaldandi virkni í 6 til 12 vikur. Blanda úr þessum tveimur innihaldsefnum úr mismunandi efnaflokkum takmarkar ónæmismyndun hjá skordýrunum. Stryker-skordýraeitrið hefur einnig áhrif á lirfur á ólíkum þroskastigum. Efnið verkar samstundis, við snertingu og inntöku. Notendaleyfisskyld vara.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Hristið úðabrúsann fyrir notkun. Setjið þunna lag af efninu í sprungur og skorur þar sem skordýr kunna að hafa leitað skjóls eða geta farið um. Þekjan á að vera einsleit og samfelld og yfirborðsflöturinn sem á að meðhöndla þarf að vera eins hreinn og kostur er. Forðast skal alla rakauppsöfnun í minnst tvo sólarhringa eftir notkun. Við eyðingu á veggjalús skal huga að því að lúsin heldur einkum til við fótagafla rúma, í rúmgrindum o.þ.h. Við eyðingu á kakkalökkum skal huga að því að þeir sækja aðallega á hlýja og jafnvel raka staði, t.d. á bak við vaska, kæliskápa, ljósabúnað, gólflista o.þ.h. Ekki má nota efnið sem loftúða eða úða því á yfirborð sem kemst í snertingu við matvæli.