Inniheldur: Asameþífos (CAS-nr. 35575-96-3): 50% m/m.
UFI: XJON-YR4Q-3R3X-S91N
Geymið fjarri hita og raka.
Gætið varúðar við notkun sæfiefna. Lesið merkimiðann og vöruupplýsingarnar fyrir notkun. Öryggisblað er tiltækt ef um er beðið.
NOTENDALEYFISSKYLD VARA
FJÖLNOTA SKORDÝRAEITUR MEÐ BRÁÐAVIRKNI
LEYSANLEGT KYRNI
Berið efnið á með lágþrýstiúða til að úðunin verði sem jöfnust. Tafarlaus virkni.
SKÖMMTUN OG LEIÐBEININGAR
Fyrirbyggjandi notkun: Blandið 25 g í 5 lítra af vatni.
Viðbragðsnotkun: Blandið 50 g í 5 lítra af vatni.
Eyðing veggjalúsa: Berið lausnina á þar sem veggjalýsnar halda til. Veggjalýs halda sig einkum við og í kringum fótagafla rúma, meðfram gólflistum, undir fataskápum, í skápum, kringum glugga, á bak við gluggatjöld, á bak við húsgögn o.þ.h. Veljið stúta sem henta til notkunar í sprungum og skorum.
Eyðing kakkalakka: Berið lausnina á svæðin þar sem kakkalakkarnir finnast. Kakkalakkar halda einkum til á bak við gólflista, undir kæliskápum, í dyrakörmum og í kringum raftæki.
Eyðing flóa: Berið lausnina með lágþrýstiúða á yfirborðsfleti þar sem flær halda sig.
Eyðing maura: Berið efnið beint á bú, slóða eða svæði þar sem uppkoman er mest.
Eyðing fleygraskordýra: Finnið staðina þar sem skordýrin safnast saman og meðhöndlið þá fleti.
Eyðing á dritbjöllu (Alphitobius diaperinus): TEENOX hefur sannreynda virkni gegn bæði lirfum og fullþroska dýrum. Úðið TEENOX á undirburðinn áður en skepnurnar eru færðar í gripahúsið og áður en öðrum búnaði (vatns- og fóðurskömmturum o.þ.h.) er komið fyrir. Til að meðhöndla 100 m² svæði skal leysa 100 g af TEENOX upp í 10 lítrum af volgu vatni. Berið blönduna á í tveimur skrefum: 1. Úðið helmingnum af lausninni á svæðið undir fóðurskömmturunum, á undirburðinn (30 til 50 cm á hæð) og við jaðar undirburðarins (50 cm á breiddina); 2. Úðið hinum helmingnum af lausninni yfir allan undirburðinn. Ekki skal meðhöndla svæði og staði sem ætluð eru til fóðrunar eða þar sem hætta er á inntöku á vörunni.
Eyðing á rauðum hænsnamítli (Dermanyssus gallinae): Til að meðhöndla svæði sem er 1000 m² skal leysa 1 kg af efninu upp í 200 til 400 lítrum af vatni, allt eftir gerð húsnæðis (lausagöngu- eða búrhýsing), til að tryggja jafna meðhöndlun svæða. Ef um mikla uppkomu er að ræða skal leysa 2 kg upp í 200 til 400 lítrum til að meðhöndla 1000 m² svæði. Berið efnið á einni viku áður en dýrin eru sett á hús. Berið á svæði þar sem vart hefur orðið við bjöllurnar, þ.e. búr, samskeyti, sprungur og skorur, alla króka og skot, undir bognum málmplötum, við enda málmstanga og röra, á öll svæði þar sem tveir fletir mætast og svæði þar sem ryk safnast fyrir. Gangið úr skugga um að efnið sé borið jafnt á, undir nægum þrýstingi til að tryggja viðloðun við alla fleti og tryggja að efnið nái inn í allar sprungur og skorur.
Leiðbeiningar um förgun á vörunni og umbúðum hennar: Umbúðunum skal fargað sem hættulegum úrgangi og ber sá sem annast förgunina fulla ábyrgð á henni. Ekki má losa efnið í niðurföll eða vatnsföll.